Jóladagskráin okkar í Fossakoti
English below
Jóladagskráin okkar í Fossakoti
English below
Í dag, 16.nóvember er dagur íslenskrar tungu og í tilefni af honum erum við með lestrarsprett Lubba. Þessa vikuna söfnum við málbeinum fyrir Lubba. Málbeinin voru send heim og skrifuðu foreldrar á þau þær bækur sem eru lesnar voru heima með börnunum. Beinunum höfum við svo safnað saman í myndalegt beinasafn fyrir Lubba sem við hengjum upp hér í leikskólanum
Við hvetjum ykkur til að lesa með börnunum ykkar vikuna allar vikur ársins því besta gjöfin sem þú gefur barninu þínu er að lesa fyrir það.
Samvera, umræður, orðaforði og málþroski er öllum börnum svo verðmætt.
Á morgun, þriðjudag, er ódótadagur á Krakkakoti en þá leikum við okkur með alls konar efnivið en engin leikföng. Við leikum okkur með föt, dollur, box og fleira og mega öll börn koma eitt ódót að heiman. Börnin mega þá koma með eitthvað sem er skemmtilegt að leika með sem er þó ekki dót, t.d. eldhúsáhöld, hatta, gömul föt eða þess háttar. Gæta þess þarf þó að ódótið sé hvorki brotthætt né hættulegt
Á morgun, föstudag 27. október, er alþjóðlegi bangsadagurinn.
Þá mega börnin í Fossakoti koma í náttfötum í leikskólann og með bangsa að heiman.
Munum að merkja bangsana svo þeir rati heim aftur.
Kæru fjölskyldur.
Í dag er síðasti dagurinn okkar fyrir sumarfrí.
Við vonum að þið njótið samverustunda og sólríkra daga næstu vikur.
Leikskólinn opnar aftur fimmtudaginn 10. ágúst kl 9:00
Gleðilegt sumar.
Við minnum á starfsdaginn okkar sem er föstudaginn 8.sept.
Þann dag er leikskólinn lokaður.
Á fimmtudaginn næsta, þann 22. júní, verður sumarhátíð Fossakots haldin. Þá verður heldur betur fjör hjá okkur í leikskólanum, það verða pylsur í hádegismat, hoppukastalafjör og Leikhópurinn Lotta mun kíkja í heimsókn til okkar í boði foreldrafélagsins. Við hlökkum mikið til að skemmta okkur saman.
Sumarhátíðin okkar er foreldralaus skemmtun.
Í dag, 5. maí sneri Blær við öðru laufblaði á lífsgildatrénu okkar og í ljós kom kurteisi.
Kurteisi er að hlusta á aðra og ekki grípa fram í, hún sýnir öðrum að það sem þeir hafa að segja er okkur þýðingarmikið og jafn mikilvægt og það sem við höfum að segja. Mikilvægt er að sýna ollum einstaklingum kurteisi, þannig virðum við náungann.
Við minnum á starfsdaginn okkar, föstudaginn 19.maí
Þann dag er leikskólinn lokaður.
Kæru fjölskyldur.
Við hér í Fossakoti viljum óska ykkur öllum gleðilegs sumars og um leið þakka fyrir ánægjulegt samskipti á skólaárinu sem er nú brátt á enda komið.
Við hlökkum til að taka á móti sumrinum með börnunum ykkar, með sól í hjarta og bros á vör.